Ég fékk þessa breyttu mynd frá Hreini bróður minum með hans vangaveltum: >
DRAUMAR VEIÐIMANNS góð mynd en erfitt myndefni ef allt á að vera á sínum stað og samkvæmt raunveruleikanum.
Þess vegna hef ég tek ég mér það bessaleyfi (Bessi gaf mér leyfi) af því að þetta er draumur þá má kanski breyta veruleikanum og gefa jafnframt skíringu á því hvers vegna þetta er erfitt myndefni af allt á að vera á sínum stað
Minn draumur um betri ljósmynd er viðhengið þar sem ég hef fjarlægt lampana neðst í vinstra horninu og ég hef málað loftið efst í hægra horninu. Ég hef líka lýst elginn dálítið og ég lýsti lika báðar myndirnar á veggnum. Nú hef ég gerst sekur um allt mögulegt sem ekki má ef maður er hreinstefnumaður.
Ég er ekki vanur að gera svona miklar breytingar á mínum myndum en hérna vildi ég sýna þér muninn á góðri mynd og betri ljósmynd, svo er það undir hverjum og einum hvað má og ekki má,
Vona að þú verðir ekki mjög fúll út í mig að taka mér þetta bessaleyfi og myndin stendur fyrir sínu að öllu óbreyttu og myndefnið er frábært kitsch sem er þess virði að ljósmynda. Nú verður þú kanski fúll af því að ég kalla veggskrautið kitsch. Tvisvar sinnum fúll er samkvæmt þeiir stærðfræði sem ég lærði:
fúll + fúll = ljósmynda-gleði.
Nú læt ég þetta flakka.
Kv.
Hreinn
Þar sem hreinn vildi leiðrétta myndina mina hugðist ég leiðrétta stærðfræði villu hans. Setti upp einfaldar formúlur til að greina setninguna “fúll + fúll = ljósmynda-gleði.fúll + fúll = ljósmynda-gleði. Svo bað ég gerfigreindina að segja mér hvað hann ættt við. Ég fékk þetta svar: “Þegar tveir fúlir ljósmyndarar hittast, geta þeir sameinað pirringinn yfir lélegri lýsingu, erfiðum viðskiptavinum eða tæknilegum vandamálum. Útkoman verður samkennd og hrein ljósmyndagleði!”. Virkilega greindarleg skýring. Hinn svarar: “ Ég er ólæs á stærđfræđi (stærđfræđileg lesblinda) og því er þađ illskiljanlegt hvernig ég druslaðist gegnum menntaskólann.
En út frá þínum fræðum skilst mér að ég sé stærðfræðilega lesblindur skilji ekki hver er munurinn á + og x. Kannski hefði mér gengið betur á stærðfræðibrautum lífsins með þig sem kennara.
Gaman að sjá hvað kemur næst frá þér í ljósmyndadellueinsdagsmyndasendingunni.
Kv.
Hreinn
“
Þetta er ansi skondið aða hann segir þetta. Það má sjá að hans greining á MYND DAGSINS 20 08 2006 er að mestu leiti byggð á stærðfræði og smá ögn af listrænu nákvæmnisauga.
Kv.
Hreinn
Tekin 21. August Fil: 2026/ Fil MYND DAGSINS 2026 08 22 frá hreini