Kristinn photos

Myndir dagsins Hreinn

--------> Fjarlægði rik / óhreinindi. Má skoða breitinguna i i Albumi Hreinn og Kristinn<----------- Kristinn
Tekin 27. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 27 27
Nú er klukkan orðin mynd dagsins þann 27.08. kl 12.34. Á þessari mynd er ég kominn eins langt og augað eygir út á sjó. Myndin í gær var var líka sjávar mynd, en sumir komu af fjöllum varðandi myndefnið. Myndefnið lyktar af sjávarseltu og kemur úr djúpunum. Svona lítur þara blaðka út sem hefur skolað á land og þurrkast á ströndinni. Kv. Hreinn............... Kristins dómur um myndina.............. Mynd Hreins 27.08 2026 finnst mer afar góð. Full av frið og ró með alt sem þarf til að mynd geti verið góð (í mínum augum). Ljósmyndarinn (allavegana myndavélin) stendur fast á þurru landi. Við sjáum að það er hvorki flóð né fjara. Þangið og steinnin sína það greinilega. Steinnin fastur á sínum stað en þángið meira háð dutlungum flóðs og fjöru. Beint fyrir ofan skip sem h´gt er að nota til að dreyma um frelsi og ovissan um hvert skipið siglir er spennandi (hvað er fram og hvað er aftur á skipinu. Sjávarlínan í nákv´mu jafnvægi undirstikar að skipið er á leið eithvað en ekki hvert. Litirnir eru dempaðir og ekki hægt að sjá nein merki um eftirvinnslu. Sem sagt verulega góð mynd -----------> tók ekki eftir smá rikkorni á myndinni <-------------- Kristinn
Tekin 27. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 27 27
Jæja, jæja, jæja nýr dagur ný mynd. Eitthvað nýtt á hverjum degi og bráðum kominn háttatími. Kv. Hreinn
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 26
Leifði mér að gera tilraun. Ómögulegt að vita hver maðurinn er eð yfirhöfuð hva sé myndað. Hér hefði smá teksti mátt fylgja með. Fæ tilfiningu fyrir að þetta sé óekta. Kanski er grár bakgrunnur betri
Tekin 26. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 26
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 25
Myndin af Hlyni er ekki sú besta sem ég hef tekið af honum, þessi er betri: Með myndini ffékk ég ----------> Nú er klukkan aftur orðin seint eða kanski snemma dags allt eftir þí hvernig maður lítur á það. Myndin frá í gær er Hlynur Pálmason ha hver, spyrjið þið kannski? Hann er besti kvikmyndaleikstjóri á Íslandi gegnum tíðina. Enginn gat komið með Rétt nafn á Hlyni í gær, svo það verða ekki veitt nein verðlaun í þeirri samkeppni. Til að gera smá grín skrifaði ég í gær " Hann baðar út hendinni og talar í hljóðnema eins og sumir aðrir. Vinsætl trikk íslendinga í Danmerkurferð" En handapat af þessu tægi kemur fram ósjálfrátt hjá mannskepnunni ef þeim er mikið niðri fyrir og þegar á að undirstrika mikilvægi þess sem sagt er.  Svo nú getið þið æft ykkur á þessu handbragði svo það virki vel næst þegar þið þurfið á því að halda.  Þetta handapat er sem sagt gott kennsluefni. <-----------------
Tekin . Fil: / Fil mynd dagsins 2026 08 24
Kl. 1,00 er kominn nýr dagur ... og hver er maðurinn? Hann er þekktur íslendingur á ferð í Danmörku og baðar út hendinni og talar í hljóðnema eins og sumir aðrir. Vinsætl trikk íslendinga í Danmerkurferð. kv. Hreinn
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 24
Nú kemur 23.08. 2026 ljósmynd dagsins. Sú er af sama feita kallinum sem var með á myndinni í gær, en nú í öðru hlutverki. Á þessari mynd kennir hann og bendir áhugasömum á jazztónlistarbrautinni. Áhugasamir áhorfendur fengu að koma upp á svið og sýna hæfni sína á tónlistarbransanum. Sumir voru með en aðrir voru virkir áheyrendur og enn aðrir voru virkir ljósmyndarar, svona er lífið. Kv. Hreinn PS: Nú svindla ég og sendi tvær myndir í dag, hér er mynd númer tvö frá þessum frábæru tónleikum.
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 23
Svindl myndin
Tekin . Fil: / Fil mynd dagsins 2026 08 23 svindl
dagsins. Nú er það JAZZ, alltaf gott myndefni. Kv. Hreinn
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 22
Með höfuðið í skýjunum... skýjaglópur? Kv. Hreinn
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 21
Sumir hlaupa það hratt að það er erfitt að festa þá á filmu (ljósmynd). Nú er orðatiltækið að festa eitthvað á filmu næstum úrelt. Kv, Hreinn
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 20
Svart hvítar myndir virka stundum betur. Kv, Hreinn
Tekin 25. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 19
Nú fáið þið aldeilis að kenna á því... Ég sendi hér með Mynd dagsins. Þetta er ekki endilega mynd sem ég hef tekið samdægurs, en nú ætla ég að senda ykkur eina góða mynd á hverjum degi. Svo sjáum við hvað ég endist lengi, eða hvað þið endist lengi að fá svona "SPAM" í pósthólfið. Mynd dagsins er tekin í dag og niðurrifsöflin eru alls staðar. Kv. Hreinn
Tekin 18. August Fil: 2026/ Fil mynd dagsins 2026 08 18