Mynd dagsins 5.11. 2026 Kristinn HAUS EGILKS / en hvar er silvrið 04. November 2026 SMC Pentax-D FA 645 55mm F/2.8 AL [IF] SDM AW ¹⁄₂₅ sec at f/2,8 250
**Umsögn Kristins:** Ég greip i innansveitarkroniku þegar ég var á FRAMM ferðalagi um daginn. Þar er mikið rætt um hauskúpu Egils frænda okkar Skallagrímssonar. Hún lá undir altari kirkjunnar þar sem þessir anskotar messuðu. Þegar kirkjan var rifinn fanst ekki kúpan. Frægur Íslendingur fyrverandi þingmaður taldi sig hafa fundið hauskúpuna ekki als fyrir laungu. I fyrirlestri héjlt hann á hauskúpunni sem var lítil. Hér sjáið þið hauskúpu Egils sagði hann og hélt kúpuni í hægri hendi og horfðist í augnatoftir Egils, og tók kunstpásu. Þá hrópaði einhver þetta er ekki rétt. Egill hafði risahöfuð og þessi kúpa er ekki stór. Ræðumaður lét ekkert slá sigh út af laginu með þessari athugasemd. Það rétt hjá þér að hún er ekki stór, enda er þetta hauskupa hans frá því hann var barn. En nú er ég búin að finna haus sem er á stærð við haus Egils eins og hann bar hann þegar hann var fullvaxta. Skorti afl og hug til að flytja HAUSINN heim. Svona hefur ÞREK OG HUGREKKI afkomenda Egils minkað. Hver veit nema ég fari með hjólbörur og nái í hausinn og taki hann með mér til Íslands ef hausinn er ekki of stór fyrir handfarangur.
Kv.
Hreinn ****** Umsögn hreins*** Þessi kemst í meistaraflokk sem ein af þínum bestu myndum.
Myndin er ekki bara góð af því að ég held upp á steina og gras, heldur af því að hún er einföld í sniðum og þó fylgir henni dulmagn / dulúð / tilfinning sem erfitt er að útskýra.
Góð eftirvinnsla með góða birtu á steininum og myrkur / gras sem umlykur steininn. Dulmagnið skapast af þessum andstæðum birtu og myrkurs. Myrkrið í grasinu gerir það að verkum að það eru engin truflandi smáatriði sem skemma og draga athyglina frá forminu á steininum sem er eins og þú gerir grein fyrir gæti minnt á hauskúpuform.
Steinninn hefur eftirminnilegt form og áferð sem má túlka eftir hugmyndum hvers og eins sem á horfir. Áferð er stór hluti af þessari mynd þar sem steininn er sléttur og slípaður en grasið myndar óreglulegt munstur umhverfis steininn.
Litameðferðin er fín. Grár og blár blær á steininum og dökkgrænir og svartir litir í grasinu.
Túlkun þín og innsýn í sögu bókmenntir kom mér á óvart, þú lest bækur þér til gagns og gamans! Lestrarkennsla hefur ekki verið gagnlaus í þínu tilfelli þó stafsetningin mætti skila sér betur.
Vel á minnst bókmenntir, er þú búinn að lesa Karl Ove Knausgård bókina sem þú fékkst í jólagjöf frá mér í fyrra?
Kv.
Hreinn