Kristinn photos
Mynd dagsins 9.11 2026 Kristinn 07. November 2026 GF45mmF2.8 R WR ¹⁄₆₈₀ sec at f/2,8 250
Umsögn Kristins: Í gær og dag hef ég eytt miklum tíma í að skilja hvernig á að nota linsurnar á áhrifaríkan hátt á nýja tækinu mínu. Þessi mynd er tekin með Fujifin 45 mm linsu sem er mjög skörp. Ég hvet þig til að skoða smáatriði myndarinnar. Smelltu á myndina til að sjá hana í skyggnuham. Smelltu svo á myndina til að fá hana í fullri vefstærð. Skoðaðu svo fuglinn og stofn trésins. Reyndu að finna fókuspunktinn á myndinni, þú getur séð úr lýsigögnunum sem ég hef notað f 2.8 til að meta fókusdýftina. Áhrifamikið ekki sett. Hér sýni ég aðeins um 5000 pixla myndin eru upprunalegir 11678 pixlar, en ekki er hægt að syna meira en ca 5785 ****** Umsögn Hreis ++++ Hér er róleg mynd með allt á sínum stað, það er að segja góð myndbygging og veðrið hefur verið með þér þannig að það eru engin ský á himninum sem gætu truflað (fínn "negativ space"). Litirnir eru dempaðir út af byrtunni og snjónum. Fuglinn í tréinu og regnhlífin gefa myndinni tvo áhrifaríka fókuspunkta. Ég er ekki góður að telja pixla en það sem ég sé á skerminum samfærir mig um að myndin er góð. Kv. Hreinn