Kristinn photos
/. Hreinn / Tekin .
Spreytti mig á sólsetursmyndinni og hún var erfið viðureignar á ánægjulegan hátt. Myndin var svo erfið að hún þarf enga eftirvinnslu, hún hittir beint í mark einsog hún er við sendinguna til mín. Sólsetur er stærsta og versta klisja ljósmyndarans. Allir sem taka sólsetursmyndir eru ljósmyndasnillingar að eigin áliti. Allir hrósa myndum af sólsetri. Þú þarft bara að beina myndavélinni að sólsetrinu og smella af og þú ert meistari meistaranna í ljósmyndagerð. Upplifunin og litirnir sjá sjálfkrafa um að allar ljósmyndir af sólsetri eru meistaraverk.Þess vegna eru flestar ljósmyndir af sólsetri klisjur. Til að brjótast út úr søoseturklisjunni þarf þarf meira til en að smella af. Ljósmyndarinn verður að hugsa sem svo "hvað get ég gert við mitt sólsetur sem gerið það eftirtektarvert"? Sólsetursmynd verður fyrst áhugaverð ef þú mætir með persónulegt sjónarhorn á myndefnið. Sólseturmyndin þín er ekki áhugaverð vegna litasýningarinnar á himninum, sóseturmyndin þín er ekki áhugaverð af því að par situr og nýtur þess að horfa á sólina setjast, hvorutveggja hefur verið ljósmyndað mörg þúsund sinnum á svipaðan hátt. Ljósmynd þín af sólsetri verður áhugaverð vegna þess að það er ljósmyndari með á myndinni. Þín sólseturmynd er mynd af sólsetri, pari sem upplifir sólsetrið og ljósmyndara sem ekki er að ljósmynda sólsetur og að endingu fjallar myndin um ljósmyndara með augun á réttum stað og myndar sólsetrið parið og ljósmyndarann.Þín ljósmynd hverfur ekki í klisjubúnkann af sólseturmyndum, myndin er áhugaverð, myndin er ljósmynd af klisju en líka umfjöllun um klisjuna. Kv.=> Hreinn