Kristinn Mynd dagsins 18.10. 2026 /. Morgunstund / morgun sleva / Tekin 18. October 2026
Athugasemd Kristins:
I gær var ég i Finnskogen. Tók cirka 10 myndir. Kanski einhver þeirra verði einhvern tíma Mynd Dagsins. Eftir of stuttan svefn vaknaði ég. Fór í gegnum fasta liði. Pissa, setja upp kaffi, Fara og ná í blað dagsins í postkassan (var komin í skóna þegar ég mundi að það var sunnudagur og ekkert blað). Þá var bara að drekka kaffið og virða fyrir sér sólarljósið sem sendi skugga á borð og veggi. Ég nota, merkilegt nokk, kaffibolla þegar ég drekk kaffi. Þeir eru fínir til kaffidrikkju og passa vel í uppþvottavélina. Galli á þeim er að þeir sleva mikið. Slevan myndar afar fjölbreytilegt mynstur utaná bollanum. Datt í hug að þetta gæti verið fínt prosjekt að vinna með sem ljósmyndaverkefni, tók 6 myndir af bolla dagsins. Knski ég ætti að merkja myndirnar „Sleva dagsins 0001“, .. „Sleva dagsins 0002“, í staðin fyrir „Mynd Dagsins18. 10. 2026“, .. ,, „Mynd Dagsins19. 10. 2026“ Hver veit har þetta verkefni endar?