Kristinn photos
Kristinn Mynd dagsins 20.10. 2026 /. / Tekin 20. October 2026
Athugasemd Kristins: Vaknaði klukkan 04 01 eftir alt of lítin svefn. Tókst ekki að sofna aftur. Eftir að hafa retnt að sona með innlögðum lestri í bók um Helgu Sörensdóttur var bara að fara á fætur og hita kaffi sækja blaðið og hefja morgunverkin. Sigþrúður sauð egg. Veit ekki hvers vegna ég gat ekki sofið. Í gær tókst mér að skifta yfir á vetrardekk á 3 bílum. Samtals voru 13 dekk sett undir. Tókst að taka af sumardekk og setja á sama dekk aftur. Þess vegna eru dekkin 13. Skrúfaði 69 rær og bolta af og 73 rær og og bolta á aftur. Ein ró eiðilagðist í átökunum. Þurtfti að kaupa 10 rær innpakkaðar í plast sem var næstum ekki hægt að opna. Mynd dagsins er í svörtu og hvítu vegna svefnleysis og svarttsíni eftir amstur gærdagsins og það sem blaðið færði mér af fréttum frá frakklandi og gasa. Ekki bætti úr skák að lesa að eina skinsamlega peningastefna Nossarana er að nota Olíosjóðin í að framleiða atomvopn til að stuðla að friði og stækkun sjóðsins. Nú rærnar eru minni en þár sem vor áður á bíl Hildar og Anders. Eins og sét (kanski) á myndini er 5 enþá í plastinu. Ef ég kaupi einn pakka í viðbót og set þær þrjár felgur hef ég tekið af 84 rær og sett á 89. Reikna svo með að kasts 20 róm af því að ein varð ónít í átökunum. ............... Athugasemd Hreins Ég er að frétta að þú sért að fara at taka á móti gullpeningi frá KSÍ fyrir frækilega framistöðu á árum áður. Það kemur væntanlega mynd í fjölmiðlum at þessari uppákomu? Á ekki að sletta úr klaufum og spyrna í bolta í tilefni þessa? Já þvílíkar sorgarfréttir fyrir heimsfriðinn að Noregur vill fá fleiri atómsprengjur til að hægt sé sprengja allt ennþá lengra til helvítis en á horfðist hér á árum áður í friðsæld kalda stríðsins. Gæti verið að svefnvandræði þín stafi af kaffisulli í morgunmat og kannski meira og minna allan daginn? Það er líka harður kostur að kyngja 84 róm (rær um rær frá róm til bolta) við eldhúsborðið. Átt þú ekki völ á betra viðbiti en þetta? Kveðja og góða fótboltaferð Hreinn