Kristinn Mynd dagsins 21.10. 2026 /. / Tekin 01. November 2013
Athugasemd Kristins:
Sótt í gamla sjóði. Enn einu sinni frá 2013. Vinnsluforrit Lightroom á heima tölvunni er tengt 7 diskum og ég get valið hvað ég sé eða ekki. Ég hef myndir frá 2026 0g 2013 sýnilegar i dag. Get grátið „2013 myndirnar“ sem eru hvorttveggja í senn sýnilegar og ósínilegar. Fæ yfirlit sem segir að ég hafi tekið 25111 myndir það árið. Myndirnar eru í undirmöppum. Þegar ég skoða smámyndir, „þumalneglurnar“ , sé ég allar „þumalneglurnar“ og get reynt að velja mynd. Smátt og smátt leysast myndirnar upp og verða ..... Litamynstur..... Þetta er ein av myndunum sem ekki verður þannig... Ég sé að það eru myndir en forritin sem hef ná bara út ca 5% av þeim. Hef reint að taka myndir sem eru í lagi og geyma þær útaf fyrir sig. Þetta tekst ekki ..... Hef samt ekki gefið upp alla von um að það fgangi. Mynd dagsins gætti kannski staðið sem simból fyrir þessa leit. „Hvar er það sem ég sé en næ ekki í“